Gerðu góða veiði í Vola í gær.

Ágætu veiðimenn.

Hann Almar Sigurðsson veiðimaður var við veiðar í Volanum ásamt bræðrum sínum.
Þeir bræður veiddu 10 fiska, stæðstu fiskarnir voru 9 p, 7 p, 3 p, 2 p og svo smærra með.
Almar segir að mikið líf sé á svæðinu og þeir hafi séð töluvert af fiski á svæðinu.

Kíkið endilega í myndagallerýið og sjáið 3-4 nýjustu myndirnar sem eru frá Almari.
Á meðfylgjandi myn er Almar með tvo stæðstu fiskana.

Lausir dagar eru á www.leyfi.is

Með kveðju,
leyfi.is

Vel veiðist í Baugstaðaós.

Kæru veiðimenn.
Vel hefur verið að veiðast í Baugstaðaós.
Hann Guðlaugur Rúnar var þar við veiðar ásamt veiðifélaga sínum og gerðu þeir fína veiði 6 fiska, bæði lax og sjóbirting.
Fiskarnir voru allir veiddir á flugu, tveir stærri sjóbirtingarnir voru 4.5 kg og laxarnir 3.5 kg og 2.5 kg

Svo það er greinilegt að sjóbirtingurinn er að ganga.

Á meðfylgjandi mynd er Rúnar með 4 kg sjóbirting.

kkv,
leyfi.is

Áfram var góður gangur í Vola í dag.

Áfram var góður gangur í Vola í dag.
Guðmann Marel og veiðifélagi hans lönduðu 4 staðbundnum urriðum og einum 3.1 kg laxi.
Veðrið sem var í dag, rok og rigning setti ekki strik í veiðina hjá þeim félögum.

Á meðfylgjandi mynd er Guðmann Marel með 3.1 kg laxinn. Laxinn tók maðk.

kkv,
leyfi.is

Fiskar að veiðast í Vola.

Kæru veiðimenn.
Hann Guðmann Marel Sigurðsson var ásamt veiðifélaga sínum við veiðar í dag í Vola. Hann landaði þessum fína 5 punda laxinn tók maðk og þeir félagar lönduðu fleiri fiskum. Þeir verða líka við veiðar á morgun svo það er aldrei að vita nema þeir landi fleirum.
Guðmann segir að mikið líf sé á svæðinu.
Lausir dagar í Vola eru til sölu hér á www.leyfi.is

Kveðja,
leyfi.is

Ný vefsíða www.leyfi.is í loftið.

Kæru veiðimenn.
Þann 27 ágúst 2018 tókum við hjá www.leyfi.is í gagnið nýja og endurgerða vefsíðu með nýju sölukerfi.
Þetta er allt annað líf, gamla kerfið var orðið lúið og því kominn tími á að endurnýja kerfið.
Þessar nýju breytingar verða því öllum til hagsbóta.

Vonumst við til þess að eiga áframhaldandi góð samskipti og viðskipti við veiðimenn.

Á þessari mynd er hann Höskuldur Ragnarsson með fallegann staðbundinn urriða sem hann veiddi í Tungu – Bár.

Með kveðju,
leyfi.is