Hlíðarvatn SVH er komið í vefsöluna.

Ágætu veiðimenn.
Nú er Hlíðarvatn SVH komið í vefsöluna hjá www.leyfi.is
Fullt af flottum dögum í boði.

kkv,
leyfi.is

Voli er kominn í vefsöluna á leyfi.is

Kæru veiðimenn.
Nú er Voli kominn í vefsöluna. I fyrra var mjög góð veiði í Vola.

kkv,
leyfi.is

Hlíðarvatn SVFS er komið í sölu á leyfi.is

Ágætu veiðimenn.
Hlíðarvatn SVFS er komið í sölu á leyfi.is

kkv,
leyfi.is

Baugstaðaós er kominn í sölu á leyfi.is

Kæru veiðimenn.
Baugstaðaós er kominn í sölu. Júlí og Ágúst og stór hluti af september seldust í forsölu hjá SVFS svo það eru aðeins færri dagar í boði en í fyrra.

kkv,
leyfi.is

Erum að setja veiðileyfin inn á vefinn þessa dagana.

Kæru veiðimenn.
Núna þessa dagana erum við byrjuð að setja veiðileyfin á vefinn okkar www.leyfi.is

Kveðja,
leyfi.is

Mjög góð veiði í Vola

Ágætu veiðimenn.

Mjög góð veiði er búin að vera í Vola.
Hann G Marel Sigurðsson er búinn að vera þar við veiðar í gær og í dag með Gunnari Guðmundssyni vini sínum.
Þeir eru búnir að landa mikið af flottum fiskum
2 birtingar 2,5 kg
1 birting 5,6 kg
1 lax 5,6 kg
og einnig 5 girtinga 1-1,5 kg

2 fiskana tóku Orange nobbler, ekki er vitað hvað hinir tóku.

Á meðfylgjandi myndum eru þeir félagar með fiskana.

Nokkrir lausir dagar eru enþá í október.

kveðja,
leyfi.is

3 flottir birtingar á flugu úr Vola.

Ágætu veiðimenn.

Hann Óskar Ingi var við veiðar í Vola í gær. Hann setti í og landaði 3 sjóbirtingum, tveimur 3pund og einum 6 pund og alla á flugu.
Á myndinni má sjá fiskana sem að Óskar veiddi.

kveðja,

leyfi.is

Góð veiði í Vola.

Kæru veiðimenn.

Systurnar Eva Hlín Thorarensen og Rósa Linda Thorarensen voru við veiðar í Volanum á mánudaginn var og gerðu góða veiðiferð þangað.
Á myndunum eru þær systur með fiskana.

Rósa Linda með 8 p sjóbirting

Eva Hlín með 5 p sjóbirting

Nokkrir dagar eru enn lausir á svæðinu.

kkv,
leyfi.is

Enn bætast stórir fiskar við í Volanum.

Sælir veiðimenn.

Hann G Marel Sigurðsson var ásamt fjölskyldu við veiðar í Vola í gær og í dag.
Þau enduðu með 7 fiska 5 stk 1 kg – 1,5 kg og svo þessa stærri, við birtum hér myndir af 2 fiskum sem þau veiddu.

Á þessari mynd hér er Siggi Marelsson með 5 kg sjóbirting úr Vola. Á féttamyndinni er svo Þórður Sæmundsson með 3,5 kg sjóbirg úr Vola.
Hægt er að sjá betri myndir af fiskunum í myndagalleríinu um Vola.

kkv,
leyfi.is

Stórir sjóbirtingar að veiðast í Vola.

Kæru veiðimenn.

Hann Pálmi Thorarensen var við veiðar í dag í Vola og þegar við heyrðum frá honum í dag þá var hann kominn með tvo sjóbirtinga, 7.5 p og 8,5 p fiskarnir tóku báðir maðk.

Á meðfylgjandi mynd er Pálmi við stærri fiskinn, hinn er á nýjustu myndinni í myndagalleríinu.
Ferðin hjá þeim endaði svo í 8 fiskum þeas 3 p lax og svo 7 sjóbirtingar 3 – 8,5 p.

kveðja,
leyfi.is