Ný vefsíða www.leyfi.is í loftið.

Kæru veiðimenn.
Þann 27 ágúst 2018 tókum við hjá www.leyfi.is í gagnið nýja og endurgerða vefsíðu með nýju sölukerfi.
Þetta er allt annað líf, gamla kerfið var orðið lúið og því kominn tími á að endurnýja kerfið.
Þessar nýju breytingar verða því öllum til hagsbóta.

Vonumst við til þess að eiga áframhaldandi góð samskipti og viðskipti við veiðimenn.

Á þessari mynd er hann Höskuldur Ragnarsson með fallegann staðbundinn urriða sem hann veiddi í Tungu – Bár.

Með kveðju,
leyfi.is