Vel veiðist í Baugstaðaós.

Kæru veiðimenn.
Vel hefur verið að veiðast í Baugstaðaós.
Hann Guðlaugur Rúnar var þar við veiðar ásamt veiðifélaga sínum og gerðu þeir fína veiði 6 fiska, bæði lax og sjóbirting.
Fiskarnir voru allir veiddir á flugu, tveir stærri sjóbirtingarnir voru 4.5 kg og laxarnir 3.5 kg og 2.5 kg

Svo það er greinilegt að sjóbirtingurinn er að ganga.

Á meðfylgjandi mynd er Rúnar með 4 kg sjóbirting.

kkv,
leyfi.is