Entries by Leyfi.is

Vorveiði

Kæri veiðimaður. Við minnum á vorveiði í maí sem er nú í boði í Vola, Tungu – Bár og í Baugstaðarósi. Einnig hefur verið opnað fyrir silungsveiði í Ölfusá frá 1 maí – 10 júní Öll veiðileyfi á þessum svæðum eru til sölu á www.leyfi.is   kveðja, leyfi.is

Ágætis gangur í Ölfusá.

Sælir veiðimenn. Á meðfylgjandi mynd er Heiðursfélagi SVFS hann Agnar Pétursson með tvo af þrem Löxum sem hann veiddi síðasta laugardag á miðsvæðinu í Ölfusá, þann þriðja veiddi hann í Víkinni. Lausar stangir eru til sölu á www.leyfi.is kveðja, leyfi.is

Fín veiði í Vola.

Sælir veiðimenn. Voli hefur verið að gefa vel uppá síðkastið.  Feðgarnir Pálmi Thorarensen og Birgir Thorarensen voru við veiðar og veiddu 6 sjóbirtinga á bilinu 4 – 8 pund, allt nýgenginn fiskur.  Birgir fékk auðvitað 8 punda fiskinn 🙂 Lausir dagar eru til sölu á www.leyfi.is   kv, leyfi.is

7 punda lax úr Vola.

Kæru veiðimenn. Hún Rósa Thorarensen veiddi 7 punda lax í Vola við Þingborg núna í morgun, bjartur og fallegur fiskur. Meðfylgjandi er mynd af Rósu með laxinn.   kveðja, leyfi.is

Viðbótardagar í Djúpavatn.

Kæru veiðimenn. Við vorum að setja inn viðbótardaga í Djúpavatni.  Júlí, ágúst og sept. Fyrstur kemmur fyrstur fær.   kveðja, leyfi.is

Reglur í veiðihúsum vegna Covid19

Kæru veiðimenn. ATHUGIÐ: Vegna Covid19 eru veiðimenn hvattir til að fylgja fyrirmælum um hreinlæti, leiðbeiningar hanga uppi í veiðihúsunum.  Og það er algjör skylda að hafa lök eða teppi á dýnum þegar gist er sumarið 2020.   kveðja, leyfi.is