Lýsing
-
-
- Tunga – Bár / Vorveiði
- LýsingVatnasvæðið er um 11 km langt eða frá gömlu brúnni við Bár í nágrenni Selfoss að brúnni við veiðihúsið í Tungu skammt austan Stokkseyrar. Sjóbirtingur er aðall svæðisins en hann er kominn á svæðið fljótlega eftir að hans verður vart í ósnum. Þá fást venjulega nokkrir laxar á hverju sumri.
- Staðsetning: Skammt austan við Selfoss
- Veiðisvæði: Frá gömlu brúnni við Bár að brúnni við veiðihúsið í Tungu, sjá nánar á veiðikorti.
- Stangafjöldi: 2 stangir
- Góðar flugur: Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og Krókurinn.
- Veiðihús: Ekkert veiðihús fylgir svæðinu. En veiðimönnum er bent á Gistiheimilið Lambastaðir, Lambastöðum – www.lambastadir.is Sími: 777 0705
- Reglur: Tvær stangir eru leyfðar á svæðinu og eru þær seldar saman. Daglegur veiðitími er frá 08:00 – 20:00. Frá 2. apríl til 31. maí er eingögnu leyfð fluguveiði og skal öllum fiski sleppt.
- Veiðibók: Rafræn skráning er á allri veiði. QR kóða og upplýsingar er að finna í „símaklefa“ á Holtsvegi og á „póstkassa“ móts við Árlund.
- Veiðikort: Veiðikort er aðgengilegt á www.leyfi.is
Umsjónarmenn / veiðiverðir: Guðmundur Þ. Óskarsson 891-6643, Jón Birgir Kristjansson 695-9273, Óskar Ingi Böðvarsson 692-9177
-