Lýsing
VOLI / Maí veiði
Lýsing
Svæðið er mjög stórt eða með Bitrulæk a.m.k. 12-14 km. Veiðikort er af svæðinu með góðum vegamerkingum og bæjarnöfnum auk merktra veiðistaða. Svæðið er í nágrenni Selfoss eða innan við 10. mín. akstur hvort sem farið er að efri hluta svæðisins ( t.d. veiðihúsi ) eða að neðri veiðimörkum sem eru gamla brúin við Bár. Á þessu svæði er staðbundinn urriði, staðbundin bleikja, sjóbirtingur, sjóbleikja, lax og jafnvel stöku áll. Má segja að von sé í ágæta silungsveiði frá vori og fram til loka á haustin á Volasvæðnu
Staðsetning: Skammt austan við Selfoss
Veiðisvæði: Frá brú við Þingborg að gömlu brúnni við Bár, auk Bitrulækjar. Sjá nánar á veiðikorti.
Stangafjöldi: 2 stangir
Góðar flugur: Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og Krókurinn.
Veiðihús: Veiðihús er á svæðinu og stendur það við gömlu brúna við Vola. Í húsinu er svefnaðstaða fyrir 4-6 manns, rennandi vatn, wc, raflýsing ( sólarrafhl.), gashitun, gashellur, Kolagrill o.fl. Veiðimenn skulu rýma húsið fyrir kl. 19.00 að kvöldi brottfarardags til að gefa þeim sem á eftir koma kost á að koma sér fyrir áður en veiði hefst kl. 20.00. Veiðimönnum ber að þrífa húsið vandlega fyrir brottför og fjarlægja rusl.
Reglur: Tvær stangir eru leyfðar á svæðinu og eru þær seldar saman. Daglegur veiðitími er frá 07.00 – 22.00. Veiðileyfi gildir frá kl. 20.00 – 22.00 kvöldið fyrir veiðidag og frá kl. 07.00 – 19.00 að kvöldi veiðidags.
Frá 1. Mai til 31 maí er eingönguu er leyfð fluguveiði og skal öllum fiski sleppt.
Veiðibók: Liggur frammi í veiðihúsi og er einnig við brúnna hjá Þingbort í Póstkassa. Veiðimönnum er skylt að skrá allan afla.
Veiðileyfi: Félagar í SVFS fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi seld á leyfi.is
Veiðivörður: Almar Sigurðsson Lambastöðum 777-0705