Lýsing
BAUGSTAÐAÓS / Vorveiði
Lýsing
Ósinn er skammt austan Stokkseyrar. Til hans fellur auk Hróarsholtslækjar, Baugstaðaá sem kemur úr Skipavatni og eru veiðimörk við útfallið úr vatninu. Fiskur gengur bæði um ósinn í Hróarsholtslæk (Vola) og Baugstaðaá. Ósinn er fornfræg veiðistöð einkum fyrir góða sjóbirtingsveiði. Fiskurinn er blandaður að stærð eða frá 1 pundi upp í 16 punda bolta. Þegar göngur koma er oft mjög líflegt og má segja að ósinn kraumi af fiski þegar mest er um að vera. Nokkrir laxar koma einnig á land á hverju sumri, flestir á bilinu 5-10 pund. Þá er ótalin sjóbleikja sem lítillega verður vart við bæði í ósnum og einnig í Vola og gæti verið spennandi fyrir áhugasama fluguveiðimenn að kanna betur, t.d. snemma að vori. Þá má nefna mikið fuglalíf við ósinn sem gerir hann að skemmtilegum stað að dvelja við á góðum degi.
Staðsetning: Skammt austan við Stokkseyri.
Veiðisvæði: Frá brú skammt fyrir ofan veiðihús niður í sjó og frá útfalli Skipavatns. Sjá nánar á veiðikorti.
Stangafjöldi: 2 stangir
Góðar flugur: Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og Krókurinn.
Veiðihús: Ekkert veiðihús fylgir með í Vorveiðinni. Veitt er frá kl 08:00 – 20:00
Reglur: Tvær stangir eru leyfðar á svæðinu og eru þær seldar saman.
Frá 20. apríl til 31. maí er eingögnu leyfð fluguveiði og skal öllum fiski sleppt.
Veiðikort: Veiðikort er aðgengilegt á www.leyfi.is
Veiðibók: Rafræn skráning er á allri veiði. QR kóða og upplýsingar er að finna á veiðihúsinu Tungu.
Veiðivörður: Ólafur Ottó 894-2187
Umsjónarmenn: Guðmundur Þ. Óskarsson 891-6643, Jón Birgir Kristjánsson 695-9273, Óskar Ingi Böðvarsson 692-9177.