Mjög góð veiði er í Baugstaðaós.
Ágætu veiðimenn.
Hann Grímur Hergeirsson stórveiðimaður var við veiðar í gær í Baugstaðaós og sendi okkur texta og mynd.
„Birtingurinn er snemma á ferðinni í Baugstaðaós. Fékk einn 73 cm, 5 kg á fluguna í gærkvöldi. Sá sem var á undan mér skráði þrjá fyrr um daginn 2,5-3,3 kg.“
Svo það er nokkuð ljóst að birtingurinn er mættur í Baugstaðaós. Það eru aðeins örfáir dagar til sölu í Baugstaðaós í júni, þetta eru einu lausu dagarnir fram í september. Á meðfylgjandi mynd er Grímur með birtinginn stóra.
Lausir dagar eru til sölu á www.leyfi.is
kkv,
leyfi.is