Lýsing
Hlíðarvatn er rúmlega 3,3 km² stöðuvatn í Selvogi vestanverðum.Vatnið liggur undir hamrahlíðum á sléttlendi við sjó, við Selvog. Mjótt eyði er milli vatns og sjávar og að sunnan er afrennsli vatnsins um Vogsós. Umhvefis Hlíðarvatn er stórbrotið eldfjallaumhverfi og mikil náttúrufegurð. Fjölbreytt fugla og dýralíf er í og umhverfisvatnið. Selvogurinn er vestasta byggð í Árnessýslu, lítil sveit, landkostir þar frekar rýrir og lítið um gróðurlendi. Fyrr á öldum var byggð í Selvogi miklu fjölmennari en nú og útræði þar stundað mjög mikið á vetrum.
Víða í nágreni við vatnið má sjá húsarústir, tættur og túngarða gægjast upp úr jörðinni og gefa innsýn í líf fyrri alda.
Skammt frá vatninu við svonefnda Engilsvík stendur kirkja þeirra Selvogsbúa, Strandarkirkja.
Kirkja þessi er þjóðfræg aðallega sökum þess að vænlegt þykir og árangusríkt að heita á kirkjuna ef mikið liggur við. Stangveiðifélag Selfoss hefur verið með veiðirétt í vatninu síðan 1978. Veiðihús félagsins var byggt 1982 og nú nýverið var það stækkað og endurbætt og er nú nælagt 40 m2. Frá Selfossi í Hlíðarvatn er u.þ.bil 48 km.
Öll notkun báta á vatninu er bönnuð.
Staðsetning: Í Selvogi ca 20 km frá þjóðveginum.
Veiðisvæði: 1
Stangafjöldi: 2
Tímabil: 1/5 – 30/09
Leyfilegt agn: Fluga og spónn
Góðar flugur: Pheasant Tail, Watson Fancy, Vynil Ribb, Peacock, Black Gnat og Krókurinn.
Veiðihús: Í húsinu er svefnpláss fyrir 8 manns og aðbúnarður allur í góðu lagi. Sólarsella er á húsi þannig að ljós er í húsinu.
Veiðimönnum ber að þrífa húsið vandlega fyrir brottför og fjarlægja rusl. Lyklar af húsi hanga við útidyrahurð.
Reglur: Tvær stangir eru leyfðar á svæðunum og eru þær seldar saman. Daglegur veiðitími er frá 08.00 – 20.00. Lausaganga hunda við vatnið er stranglega bönnuð.
Veiðikort: Veiðikort hangir uppi á vegg í veiðihúsinu.
Veiðibók: Liggur frammi í veiðihúsi, mikilvægt að skrá allan afla.
Veiðileyfi: Félagar í SVFS fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi seld á leyfi.is
Umsjónarmenn / veiðiverðir: Steingrímur Ólason 8973447 og Agnar Pétursson 892-5814