Lýsing
BAUGSTAÐAÓS
Lýsing
Ósinn er skammt austan Stokkseyrar. Til hans fellur auk Hróarsholtslækjar, Baugstaðaá sem kemur úr Skipavatni og eru veiðimörk við útfallið úr vatninu. Fiskur gengur bæði um ósinn í Hróarsholtslæk (Vola) og Baugstaðaá. Ósinn er fornfræg veiðistöð einkum fyrir góða sjóbirtingsveiði. Fiskurinn er blandaður að stærð eða frá 1 pundi upp í 16 punda bolta. Þegar göngur koma er oft mjög líflegt og má segja að ósinn kraumi af fiski þegar mest er um að vera. Nokkrir laxar koma einnig á land á hverju sumri, flestir á bilinu 5-10 pund. Þá er ótalin sjóbleikja sem lítillega verður vart við bæði í ósnum og einnig í Vola og gæti verið spennandi fyrir áhugasama fluguveiðimenn að kanna betur, t.d. snemma að vori. Þá má nefna mikið fuglalíf við ósinn sem gerir hann að skemmtilegum stað að dvelja við á góðum degi.
Staðsetning: Skammt austan við Stokkseyri.
Veiðisvæði: Frá brú skammt fyrir ofan veiðihús niður í sjó og frá útfalli Skipavatns. Sjá nánar á veiðikorti.
Stangafjöldi: 2 stangir
Góðar flugur: Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og Krókurinn.
Veiðihús: Veiðihús fylgir svæðinu og stendur það á lækjarbakkanum að austanverðu rétt við Gaulverjabæjarveg. Húsið er merkt Veiðihúsið Tungu , sjá kort. Í húsinu er svefnaðstaða fyrir 4-6 manns, rennandi vatn, wc og rafmagn. Húsið er því upphitað. Veiðimenn geta mætt í hús klukkustund áður en veiði hefst (15:00/14:00) og skulu rýma húsið fyrir kl. 14:00 á brottfarardegi. Þetta veiðileyfi gildir fyrir 2 stangir og aðgang að veiðihúsi. Veiðimönnum ber að þrífa húsið vandlega fyrir brottför og fjarlægja rusl.
Reglur: Tvær stangir eru leyfðar á svæðinu og eru þær seldar saman. Daglegur veiðitími er frá 07:00 –13:00 og 16:00 – 22:00. Veiðileyfi gildir frá kl. 16:00 á veiðidegi og frá kl. 07:00 – 13:00 daginn eftir. Hlé er á veiði frá 13:00 – 16:00. Frá 16. ágúst er seinni vaktin frá kl. 15:00 – 21:00. Ef keyptur er 20. júlí þá er byrjað kl. 16:00, 20. júlí.
- Frá 1. mai til 31. maí er eingögnu leyfð fluguveiði og skal öllum fiski sleppt.
- Frá 1. júní til 15. september má veiða á flugu, maðk og spón. Leyfilegt er að drepa þrjá fiska á dag pr. stöng, þ.e. samtals 6 fiska á sólarhrings veiðikort en sleppa skal öllum fiski yfir 65 sm.
- Frá 15. september til 20. október er eingöngu leyfð fluguveiði og skal öllum fiski sleppt.
Veiðikort: Veiðikort er í veiðihúsinu.
Veiðibók: Rafræn skráning er á allri veiði. QR kóða og upplýsingar er að finna í veiðihúsinu Tungu.
Veiðileyfi: Félagar í SVFS fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi seld á leyfi.is
Veiðivörður: Ólafur Ottó – 849-2187
Umsjónarmenn: Sölvi B Hilmarsson – 862 4900, Jón Birgir Kristjánsson – 695 9273 og Óskar Ingi Böðvarsson – 692 9177.